27.9.2007 | 20:21
Heiðarleiki eða þannig .
Eg fékk að heyra í vinnunni í dag að það væri ekki að marka orð af því sem ég segði . Það kom illa við suma að nú er komið að mér að fara í sumar frí .þetta var mesta vitleysa sem ég hefði láti út úr mér.Halelúja.En Herjólfur siglir með mig innanborðs á morgun Halelúja Ég býst við að verða drullu sjóveik .,en það verður ekki á allt kosið . Erað reyna að pakka einhverju niður en gangur ekkert.En tólf daga frí framundan.Húrra Kvöld matur bíður.Bless
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
26.9.2007 | 14:02
Kvöld blíðan logn væra .
úti hamast rokið og rigningin ,eins og ekkert annað sé til stormur og ég að fara í Herjólf oj oj .Týr var að koma í pössun svo þau eru fjögur oi hjá ömmu í pössunSá á eftir þeim litla með baðvogina í fanginu ,kanski spáir sá stutti í megrun ekki seinna vænna tveggja ára að verða .Verð að biðja allar góða vættir að gefa mér góða sjóferð á föstudaginn.ég ætti líklega að fara að pakka niður...láta sem ekkert sé kanski skýn þá sólin. Það væri frábært. verð að hætta núna.bless.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
23.9.2007 | 07:38
'Islendingar og Grímsey.
Hvað er að .Eiga Grímseyingar ekki að fá nýtt skip Ráðherrar og þingmenn ,og aðrir sem að málinu koma.Eg held að það sé klúður í gangi . Slæmt ,mjög slæmt Ábyrgð er orð sem segir mykið.Og að rífast um það hver á að afsaka hvern gerir ekkert gagn.Og að ausa fé í ónýta ferju ,gerir ekkert gagn heldur.'islendingar eiga þann húmor ,að geta hlegið að ykkur ,ágætu ráðamenn ,enmálið er alvarlegt Svo alvarlegt að Árni Jonsen er engill miðað við ykkur .Hann játaði ,ja já og allt það og fór.En þið ,hvar eruð þið. Er ekki komið nóg.Fyrir alla muni ,kaupið bara nýjan Herjólf og sleppið öllum svona kúnstum .Látiðsvo skynsemina ráða .Ekki gleyma henni endalaust.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.9.2007 | 18:15
Í dag er búið að vera sól.
Það er þetta með veðrið ,aldrei sama veðrið stundinni lengur Blessaðar lægðirnar komnar í rennuna sína og þetta með áttirnar verður bara grautur , en án þess arna væri bara ekkert gama að vara til ,Hugsið ykkur tuttugu og fimm stiga hita alla daga ,oj,oj .ekki fyrir mig :Betra þetta með lægðunum.Búin að fá þó nokkra geitunga inn ,hélt að þessu flugna geri væri lokið ,en nei nei sex lágu í gær. Búin að komast að því að það má nota moggann til ýmissa hluta .verðað segja bless í bili stína.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.9.2007 | 18:47
Þetta með laun gamla fólkkksins.
Í dag eru 5 ár frá því ég missti manninn. Af því tilefni fékk ég bréf , og mér tilkynnt að ,ný lagagrein segi að nú fái ég ekki lífeyrir eftir hann lengur . Flott að gera nýjar lagagreinar og lækka laun gamalla kvenna um 8 þúsund kall ekki var það nú meira. Svona gengur lífi og tilveran hjá okkur öldruðum . Góðærið hefur alveg farið fram hjá buddunni minni,líklega eins og hjá fleirum.Allt í lukkunar velstandi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
9.9.2007 | 13:15
Allt hefur sinn tíma.
Einu sinni las hann afi minn fyrir mig sögu í ákveðinni bók ,að fyrir langa löngu hefði mannfólkið gerst hugum stórt og hafið byggingu á geysi stórum turni . Í sögunni segir að guð hafi orðið reiður og sundrað mannfólkinu Síðan skyldi enginn hvern annan. Þetta er nú bara smá sem ég las úr sögunni hans afa. Þetta var fyrir langa löngu , Sagan segir mér að guð sé einn, sama mannkynið kallar hann hver er Jehófa Múhameð Alla og hvað hann er kallaður út um allan heim Guð er enn þá einn. Hvenær skyljum við svona einfallt dæmi. Að berjast og halda að stríð séu heilög eða guðs vilji er mannkyns mesta heimska og alls ekki guðs vilji, aðeins heimska manna.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.9.2007 | 17:16
yfir þyrmandi svitakóf á gamals aldri.
Ekki er öll vitleysan eins ,heilsan gerist all dularfull ég hélt ég væri öðruvísi en allar aðrar og slyppi við allt tíðahvarfa vesen ,en komin á áttræðis aldur ásækja mig hitakóf af verstu gerð. Vonandi fer þessu að linna.Anna búin að gera allt klárt fyrir mig í Herjólf í byrjun okt.Ekki veit ég hvernig gengur með að fá frí. Boss ekki ánægð með að ég fari í frí .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Kristín Anna Karlsdóttir
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar